Hverjir eru eigendur BYRs ????

 

  Á ekki almenningur, sem nú er látinn standa straum af kostnaði við björgun BYRs, rétt á að fá að vita hverjir eigendur BYRs eru ?

 Hvaða menn borguðu sér 13,5 milljarða út úr sjóðum BYRs eftir árshagnað uppá 7,9 milljarða ?

 Eru það kannski sömu mennirnir og eru búnir að ryksuga upp allt fjármagn á Íslandi ?

 Er tryggt að þeir séu farnir frá stjórnun BYRs, eða taka þeir bara björgunarpeningana líka og láta sig hverfa? 

 Er kannski ekki hægt að fá að vita hverjir þetta eru ? Eru eigendur BYRs kannski bara einhver

Holding þetta eða Group hitt á TORTÓLA? 

 


mbl.is 6 sparisjóðir óska eftir aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Þú mátt nú ekki gleyma að það var stofnfjáraukning upp á 27 milljarða hjá BYR. Hérna er eiganda skrá BYRs

Imon ehf1.206.647.7017,717%
Saxhóll ehf1.173.627.0617,506%
IceCapital ehf 959.245.5706,130%
Kaupthing Lux 721.662.6144,615%
Bygg invest ehf638.706.8904,085%
Landsbanki Lux (Kilimanjaro S.a.r.l)556.957.8543,562%
Fjárfestingafélagið Klettur ehf527.786.4353,375%
FI Fjárfestingar ehf484.718.7353,100%
Myllan-brauð ehf414.761.8092,653%
Glitnir hf313.097.9192,002%
Exeter Holdings ehf306.295.0261,960%
Sólstafir ehf299.426.2671,915%
Fons hf211.114.4871,350%
Glitnir Eignarhaldsfélag ehf207.475.4421,327%
Hagar ehf207.475.4421,327%
Skarðshyrna ehf151.114.4870,966%
Sameinaði Lífeyrissjóðurinn141.372.4540,904%
Saga Capital fjárfestingarbanki hf120.187.6130,769%
Helgi Vilhjálmsson105.557.2870,675%
Þórður Magnússon105.557.2870,675%
Víkur ehf103.002.6380,659%
Sparisjóðurinn í Keflavík75.033.7120,480%
Bert Martin Hansson71.878.5990,460%
Eiður Gunnlaugsson69.371.3430,444%
Einar Örn Jónsson62.296.9540,398%
Jón Kr. Sólnes62.185.1160,398%
Skúli Ágústsson47.314.7560,303%
VBS Fjárfestingabanki hf.44.774.8950,286%
Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson43.117.3780,276%
Rauðagil ehf.42.242.6980,270%
---------
Þrjátíu stærstu samtals9.474.006.47060,59%
Aðrir stofnfjáreigendur samtals6.162.250.12039,41%
Stofnfjárhlutir samtals15.636.256.590100,00%

Haraldur (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 00:01

2 identicon

Ég vissi ekki að hugmyndin með stofnfé væri að taka það jafnharðan út aftur.

Hve mikið að stofnfénu er fengið að láni í sparisjóðnum sjálfum ?

Þessi listi segir harla lítið um það hverjir eru eigendur BYRs.

Eru svo ekki endalaus Holding og Group  og ehf. sem eiga öll þessi Group, Holding og ehf.  Svo eiga þessi Holding, Group og ehf. hvert annað í kross. Enda þessar halarófur og krosseignaflækjur í Luxembourg eða þarf að fara alla leið til TORTÓLA.

Á eigendalistanum eru 8 menn af holdi og blóði skráðir fyrir samtals 3,6% eignarhlut, það er nú allt og sumt. Þessi súpa af Groups, Holdings og ehf-um er löngu hætt að vera fyndin.

Árni Árnason (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 09:53

3 identicon

"Hve mikið að stofnfénu er fengið að láni í sparisjóðnum sjálfum?"

Ef ég man rétt þá má stofnjárauking ekki vera lánuð af sparisjóðnum eða öðrum sparisjóðum. Þess vegna fór þessi aukning á stofnfé í gegnum Glitini.

"Langafi stofnaði Sparisjóð Hafnafjarðar með fleirum, það væri gaman að vita hvar stofnfjárbréfin hans eru í dag eða hvers virði þau eru?"

Skv MP þá er gengið á stofnfjárbréfum í BYR 3.5kr

Haraldur (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 19:16

4 identicon

"Ef ég man rétt þá má stofnjárauking ekki vera lánuð af sparisjóðnum eða öðrum sparisjóðum. Þess vegna fór þessi aukning á stofnfé í gegnum Glitini."

 Og dettur einhverjum í hug að "má ekki" standi í vegi Tortólanna ?

 Hvað ef L.D.D. Group ( left desk drawer Group ) fær lánið, en R.D.D. Holding kaupir stofnféð ?

 Annars breytir litlu hvaðan akkúrat þessir peningar komu, þeir enduðu allir á sama stað hvort sem var.

Árni Árnason (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband